UEFA víxlaði heimaleikjum Stjörnunnar og Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan mætir færeyska liðinu Víkingi Götu í 1. umferð undankeppninnar í Sambandsdeildinni í næsta mánuði. Leikirnir fara fram 9. júlí og 16. júlí.
Víkingur var fyrra liðið sem kom upp úr pottinum og ætti því að fá heimaleik í fyrri leik liðanna. En það verður ekki raunin.
Evrópska fótboltasambandið, UEFA, hefur víxlað leikjunum þar sem annað lið er að spila Evrópuleik á sama tíma í Færeyjum og var því ákveðið að Stjarnan myndi spila fyrri leikinn á heimavelli.
NSÍ Runavík, lið Sigga Ragga og Alex Freys, spilar gegn liði Hamrun frá Möltu í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Samkvæmt UEFA munu bæði NSÍ og Víkingur spila heimaleikinn í Klaksvík.

Stjarnan endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í fyrra en Víkingur endaði í 4. sæti Betri deildarinnar. Víkingur er sem stendur í 4. sæti deildarinnar í Færeyjum tíu stigum á eftir NSÍ sem er á toppnum.