Fotbolti.net
11.05.26 - 22:52
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu atvikið: Átti Tottenham að fá fyrstu vítaspyrnu tímabilsins?

Sjáðu atvikið: Átti Tottenham að fá fyrstu vítaspyrnu tímabilsins?
Canon

Mynd: EPA

Tottenham gerði jafntefli við Leeds United í spennandi slag fyrr í kvöld og er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar tvær umferðir eru eftir.
Antonín Kinský bjargaði Tottenham með tveimur frábærum markvörslum í leiknum en svo vildu heimamenn fá dæmda vítaspyrnu þegar James Maddison féll til jarðar á 103. mínútu.

Jarred Gillett dómari dæmdi hornspyrnu í stað vítaspyrnu og ákvað VAR-teymið ekki að skerast inn í leikinn.

Maddison datt niður eftir samskipti við Lukas Nmecha. Nmecha náði að snerta boltann lítillega áður en hann felldi Maddison til jarðar og heimtuðu heimamenn vítaspyrnu, en fengu ekki.

Þetta hefði verið fyrsta vítaspyrnan sem Tottenham fær dæmda sér í hag á deildartímabilinu.

Sjáðu atvikið

Sjáðu atvikin: Tel reyndi galnar hreinsanir
TENGT EFNI

Sjáðu atvikin: Tel reyndi galnar hreinsanir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.