Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
banner
   mán 11. maí 2026 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Tel reyndi galnar hreinsanir
Mynd: EPA
Skemmtilegum leik var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni þegar Tottenham gerði 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Leeds United.

Mathys Tel lét til sín taka í þessum leik. Hann var afar líflegur í sóknarleik Tottenham og skoraði eina mark liðsins með frábæru skoti eftir að boltinn barst til hans í kjölfar hornspyrnu.

Hann tók þó ótrúlegar ákvarðanir í varnarleiknum og gerðist sekur um að gefa Leeds vítaspyrnu þegar hann reyndi að hreinsa boltann úr teignum með hjólhestaspyrnu.

Tel leit til hliðar og sá Ethan Ampadu koma á sprettinum til að berjast um háan bolta en Frakkinn efnilegi ákvað þrátt fyrir það að reyna hjólhestaspyrnuna, sem endaði illa. Tel sparkaði í ennið á Ampadu sem fékk skurð og réttilega dæmda vítaspyrnu.

Þetta var þó ekki fyrsta skrýtna hreinsunin frá Tel í þessum leik vegna þess að hann var næstum því búinn að gefa Leeds mark í fyrri hálfleik.

Sjón er sögu ríkari og er hægt að horfa á atvikin hér fyrir neðan.

Sjáðu ótrúlegt brot Mathys Tel innan vítateigs

   11.05.2026 22:19
De Zerbi: Mathys Tel er miður sín



Tottenham 0-0 Leeds - Incredibly risky clearance by Mathys Tel 19'
by
u/MysteryBagIdeals in
soccer



Ethan Ampadu's forehead injury after Tel's challenge
by
u/matathegamer in
soccer

Slapp
banner