Fotbolti.net
11.06.04 - 11:04
Hafliði Breiðfjörð

Heinze til Man Utd (Staðfest)

Heinze til Man Utd (Staðfest)
Canon
Manchester United gengu í morgun frá kaupum á argentíska varnarmanninum Gabriel Heinze frá Paris Saint Germain á 6 milljónir punda. Heinze sem er 26 ára gamall er önnur kaup United í sumar en áður hafði Alan Smith verið keyptur frá Leeds á 7 milljónir punda. Heinze gerði fimm ára samning við félagið eins og Smith.
Heinze sagði:
,,Ég hef skuldbundið mig næstu fimm leiktíðirnar hjá Manchester United. En það er tilfinningaþrungin stund að yfirgefa PSG. Ég skulda þeim mikið. En draumur minn er að rætast með því að ganga í Man Utd. Ég mun halda áfram að leggja mikið á mig hinum megin við sundið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.