Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. júní 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rosenior orðaður við Ipswich
Mynd: EPA
Kieran McKenna hætti sem stjóri Ipswich í gær og tilkynnti að hann ætli að taka sér frí frá fótbolta aðeins mánuði eftir að hann kom Ipswich upp í úrvalsdeildina.

Hann var þá orðaður við Fulham en það er ljóst að ekkert verður úr því.

Samkvæmt heimildum Telegraph er Liam Rosenior, fyrrum stjóri Chelsea, orðaður við Ipswich. Hann var rekinn frá Chelsea í apríl eftir aðeins þrjá mánuði í starfi.

Þá er Gary O'Neil einnig orðaður við Ipswich en hann tók við af Rosenior hjá Strasbourg í janúar.
Slapp
banner
banner