11.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Kauptilboð Chelsea í Geremi samþykkt. (STAÐFEST)
Real Madrid hafa samþykkt 6,9 milljón punda tilboð Chelsea í miðvallarleikmanninn Geremi. Leikmaðurinn knái frá Kamerún lék með Middlesbrough á láni á síðustu leiktíð. Samkomulag náðist í morgun eftir að félögin eyddu miklum tíma í gær við samningaviðræður í gegnum faxtækið. Chelsea mun fyrst hafa boðið 6,2 milljónir punda en Real vildi ekki bakka með kröfuna upp á 6,9 milljónir. Enn á þó eftir að ganga frá persónulegum skilmálum við Geremi sem eins og stendur er í sumarfríi í heimalandinu í kjölfar Álfukeppninnar en búist er við að það gangi hratt fyrir sig.
