Fotbolti.net
11.07.26 - 23:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jöfnunarmark Bellingham umdeilt - „Dómararnir hefðu átt að sjá þetta"

Jöfnunarmark Bellingham umdeilt - „Dómararnir hefðu átt að sjá þetta"
Canon

Mynd: EPA

Það er framlenging í leik Noregs og Englands í 8-liða úrslitum á HM en staðan var 1-1 að loknum 90 mínútum.
Norðmenn komust yfir með marki Andreas Schjelderup en Jude Bellingham jafnaði metin í lok fyrri hálfleiks. Harry Kane skoraði stuttu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Torbjörn Heggem skoraði fyrir Norðmenn í seinni hálfleik en markið var dæmt en dómurinn var mjög umdeildur.

Það var annað umdeilt atvik í leiknum en talið er að mark Jude Bellingham hafi verið ólöglegt. Orjan Nyland, markvörður Noregs, tók útspark og boltinn virtist snerta víra sem halda myndavélunum uppi fyrir ofan völlinn.

Reglur FIFA segja að það eigi að dæma uppkast ef það gerist. FIFA hefur greint frá því að engin snerting hafi orðið á vírinn miðað við gögnin úr skynjaranum í boltanum.

„Áður en markið kom þá fór boltinn frá Ørjan í vírinn fyrir myndavélina yfir vellinum, þannig að boltinn fór styttra en hann hefði átt að gera. Dómararnir hefðu átt að sjá þetta,“ sagði aðstoðarþjálfari Noregs, Kent Bergersen, við TV 2 rétt fyrir seinni hálfleikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.