Fotbolti.net
11.07.26 - 11:36
Elvar Geir Magnússon

Trump og Kane fóru saman í golf

Donald Trump í golfi.

Donald Trump í golfi.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, fyrirliði Englands, segir að það hafi verið súrrealísk upplifun að spila golf með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Athygli vakti þegar Trump lýsti yfir hrifningu á Kane nýlega og nú hefur komið í ljós að þeir tóku saman golfhring fyrir átján mánuðum.
Trump hrifinn af Kane
TENGT EFNI

Trump hrifinn af Kane

„Ég var í Flórída og fékk boð frá honum um að taka með honum golfhring. Það var súrrealískt að hitta hann og spila með honum. Í sannleika sagt er hann ansi góður í golfi," segir Kane.

Trump sjálfur hefur einnig tjáð sig um golfið með Kane.

„Ég spilaði golf með honum og mér líkar virkilega vel við hann. Hann er góður golfari líka. Hann er virkilega góður," segir Trump.

Trump mun væntanlega fylgjast vel með í kvöld þegar Kane og félagar mæta Noregi í 8-liða úrslitum HM.
Harry Kane.

Harry Kane.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.