Fotbolti.net
24.08.26 - 09:14
Elvar Geir Magnússon

Hendi guðs boltinn seldur á 415 milljónir

Maradona með heimsmeistarabikarinn.

Maradona með heimsmeistarabikarinn.

Canon

Mynd: EPA

Fótboltinn sem Diego Maradona skoraði með sitt fræga mark „hendi Guðs“ á HM 1986 hefur verið seldur á uppboði fyrir 2,5 milljónir punda eða rúmlega 415 milljónir íslenskra króna.

Þetta er þó talsvert lægri upphæð en spáð var en uppboðshaldarar höfðu vonast eftir því að hann færi á meira en 7 milljónir punda. Það er svipuð upphæð og treyja Maradona úr umræddum leik seldist á 2023.

Markið er líklega frægasta mark fótboltasögunnar en Maradona skoaraði það fyrir Argentínu gegn Englandi. Maradona sló boltann inn með hendinni en dómararnir tóku ekki eftir því og dæmdu markið gilt.

Eftir leikinn sagði hann við fjölmiðla að markið hefði verið skorað með „hendi Guðs“.

Maradona skoraði síðar í leiknum það sem varð þekkt sem „mark aldarinnar“, þar sem hann rak boltann framhjá fimm útileikmönnum Englands áður en hann kom honum framhjá Peter Shilton markverði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.