23.08.26 - 20:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eiður Smári: Nóg ef það væri dýna upp á æfingasvæði
Auglýsing

Mynd: KA

Mynd: KA
Eiður Smári Guðjohnsen stýrði KA í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið tapaði 5-3 gegn KR. Fótbolti.net ræddi við Eið eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 3 - 5 KR
„Þetta eru blendnar tilfinningar. Ég er svo hæstánægður að hafa tekið þessa ákvörðun, ég fann það í dag hversu spenntur ég er að takast á við þetta verkefni," sagði Eiður Smári.
„Auðvitað er svekkjandi að tapa á heimavelli. Það gengur ekki að leka inn fimm mörkum. Mörg hver aðeins of auðveld að skora hjá okkur. Það má líka segja á móti að KR er með mikil gæði í sínu liði og nýtti sér það vel í dag. Ég er ánægður með það sem við sköpuðum, við skorum þrjú mörk og hefðum hæglega getað skorað tvö til þrjú í viðbót."
KA er í 11. sæti, stigi frá öruggu sæti, eftir leiki kvöldsins.
„Það er mikið verkefni framundan og við vitum í hvaða stöðu við erum. Það er engin skömm af því að tapa á móti KR því þeir eru eitt best spilandi lið í deildinni. Þeir hafa sýnt það oftar en einu sinni. Við þurfum að einbeita okkur af hlutum sem við þurfum að laga. Við skorum sjö mörk í síðustu tveimur leikjum og það ætti að vera nóg til að fá meira en eitt stig. Við þurfum að ná í einhver stig til að taka með okkur þegar deildin skiptist upp," sagði Eiður.
Eiður Smári var ráðinn inn í þjálfarateymi KA á dögunum.
„Þetta var tækifæri sem bauðst. Miðað við það sem ég hef séð af liðinu í sumar og það sem ég er búinn að gera mína heimavinnu síðan ég tók þessa ákvörðun og hafa séð þá núna á æfingum þá er ég sannfærður um að þetta lið hefur ekki spilað nálægt þeirra bestu getu. Ég vonast til að ná því úr leikmönnum, að þeir geri sér grein fyrir því að það er mikið undir fyrir félagið. Við munum gera allt sem við getum í sameiningu að halda okkur meðal þeirra bestu," sagði Eiður.
Það var ekkert mál að taka ákvörðun um að flytja til Akureyrar.
„Ég bjó einn í Kína í fimm mánuði. Horfðu í kringum þig, þetta er fallegur bær og hér er allt til alls til að einbeita sér að því verkefni sem ég tók að mér. Ég var að fíflast með það að ef það væri dýna upp á æfingasvæði þá væri það alveg nóg fyrir mig. Ég verð hér mest megnis," sagði Eiður.