Fotbolti.net
24.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Guehi í nýju hlutverki - „Maresca átti hugmyndina“

Marc Guehi í leiknum gegn Bournemouth

Marc Guehi í leiknum gegn Bournemouth

Canon

Mynd: EPA

Enski miðvörðurinn Marc Guehi spilaði í nýju hlutverki í 2-1 sigri Manchester City á Bournemouth í gær.
Það vakti athygli þegar byrjunarlið Manchester City var tilkynnt, en þar voru sex leikmenn sem leika alla jafna í vörninni. Margir veltu því fyrir sér hvernig Enzo Maresca hygðist stilla liðinu upp.

Guehi hitaði ekki upp með varnarlínunni og því grunaði menn strax að hann yrði notaður á miðsvæðinu, sem var síðan staðfest þegar leikurinn hófst.

Guehi lék sem varnarsinnaður miðjumaður og komst vel frá verkefninu. Hann kórónaði frammistöðuna með því að skora jöfnunarmarkið áður en Josko Gvardiol tryggði City sigurinn.

„Þetta var hugmynd Maresca. Við æfðum þetta í vikunni og vorum að prófa ólíkar útfærslur og lausnir fyrir liðið. Ég er ánægður með að þetta gekk upp. Ég naut þess að spila þarna og fékk mikla hjálp frá öllum í kringum mig. Þegar maður finnur fyrir svona miklum stuðningi líður manni vel úti á vellinum og getur einbeitt sér að því að gera sitt besta fyrir liðið,“ sagði Guehi við Sky og BBC.

Maresca sagðist hafa séð Guehi fyrir sér í þessu hlutverki allt frá því að hann lék með Crystal Palace.

„Guehi hafði aldrei spilað sem miðjumaður áður en hann stóð sig mjög vel. Ég er því afar ánægður með framlag leikmannanna. Stundum þarf maður einfaldlega að sjá hlutina fyrir sér. Ég hef fylgst með Guehi frá því hann var hjá Palace og fannst alltaf að hann gæti spilað á miðjunni vegna þess hversu góður hann er. Við prófuðum þetta á æfingum í nokkra daga og mér fannst hann standa sig mjög vel,“ sagði Maresca.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.