24.08.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
Ceferin útilokar framboð til forseta FIFA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, útilokar að bjóða sig fram til forseta FIFA á þingi sambandsins í mars en segist þó búast við því að sitjandi forseti, Gianni Infantino, fái mótframboð.

TENGT EFNI
Lýsa yfir vantrausti gegn Infantino
Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
„Ég hef ekki áhuga af tveimur ástæðum. Önnur ástæðan er sú að ég elska UEFA og ég elska að vinna hér. Hitt atriðið er að trúverðugleiki minn er miklu, miklu meiri ef ég hef ekki áhuga á stöðunni," segir Ceferin.
Ceferin segist búast við því að annað hvort muni Infantino segja af sér vegna skorts á stuðningi eða að hann fái mótframboð. Þá segir hann að hugmyndir Infantino hafi verið verri en áætlanir um stofnun sérstakrar Ofurdeildar í Evrópu.