11.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Stepanovs til Beveren. (Staðfest)
Varnarmaðurinn Igor Stepanovs sem hefur verið týndur í herbúðum Arsenal nú í lengri tíma er kominn í leitirnar. Lettinn er á leið til Belgíska liðsins Beveren á láni. Hann spilaði aðeins 4 aðalliðsleiki með Arsenal á seinustu leiktíð en hann hefur mjög lítið spilað síðan að hann kom til liðsins árið 2000.
