11.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Kanu til Peterborough. (Staðfest)
Varnarmaðurinn Christopher Kanu bróðir Nwanko Kanu hjá Arsenal er genginn til liðs við Peterborough. Þessi fyrrum leikmaður Arsenal og Ajax mun væntanlega spila sinn fyrsta leik gegn Bradford á laugardaginn. Kaupin hafa tekið langan tíma en eru nú loksins gengin endanlega í gegn.
