Fotbolti.net
11.08.17 - 20:55
Brynjar Ingi Erluson

Addó: Þurfum að taka hvert einasta stig sem er í boði

Auglýsing
Addó: Þurfum að taka hvert einasta stig sem er í boði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Valsson, þjálfari ÍR í Inkasso-deildinni, var ánægður með stigið sem liðið fékk í markalausa jafnteflinu gegn Þór í kvöld. Liðið reynir hvað það getur til þess að halda sér frá falli.
„Sáttur við stigið. Þetta er mjög erfiður leikur á móti mjög physical Þórsliði þannig við tökum þessu. Þetta voru slagsmál og við vissum hvernig þeir myndu spila og aðalmálið var að mæta þeim og við gerðum það. Þetta var ekki mikill fótbolti,\" sagði Arnar við Fótbolta.net.


„Ég get ekki talað fyrir Þórsara en við ætluðum að halda hreinu marki og þá ertu alltaf með eitt stig öruggt. Þú sást í lokin eftir 80. mínútu þá hættu bakverðirnir að fara upp og við reyndum að vera aðeins passívir.\"

Hann var ánægður með baráttuna í sínum mönnum i dag og er bjartsýnn á framhaldið.

„Við þurfum að taka hvert einasta stig sem er í boði og ef það er eitt stig þá tökum við það. Við vorum oft með jafnan leik og ætluðum að sækja þrjú stig svo við erum búnir að átta okkur á því og reynslunni.\"

„Ef að drengirnir eru tilbúnir að gefa baráttuna sem þeir voru að gefa hérna þá líst mér vel á þetta,\"
sagði hann ennfremur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.