Fotbolti.net
18.07.26 - 12:28
Brynjar Ingi Erluson

Freyr hjá Fram til 2029 (Staðfest)

Freyr hjá Fram til 2029 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Freyr Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við Fram til 2029.
Sterkastur í 10. umferð - Tek hattinn ofan
TENGT EFNI

Sterkastur í 10. umferð - Tek hattinn ofan

Þessi tvítugi leikmaður hefur farið á kostum með Fram á tímabilinu. Hann hefur einu sinni verið valinn leikmaður umferðarinnar og þrisvar átt sæti í liði vikunnar.

Freyr samdi við Fram árið 2023 eftir að hafa verið valinn besti leikmaður ársins á lokahófi Sindra.

Hann hafði áður leikið með 2. flokki Fram og æft með aðalliðinu veturinn áður en hann gekk formlega til liðs við félagið.

Freyr hefur leikið 13 deildarleiki á tímabilinu og skorað þrjú mörk fyrir Fram, sem hefur gert góða hluti í deildinni.

Hann hefur nú skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið, en Fram staðfesti tíðindin á heimasíðu sinni.

„Það hafa verið mikil forréttindi að fylgjast með leikmanni eins og Frey í Fram treyjunni og sjá hann vaxa og dafna síðustu tímabil. Við erum ótrúlega ánægð með að hafa tryggt okkur krafta hans áfram,“ sagði Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs hjá Fram.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.