Fotbolti.net
18.07.26 - 12:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Damir spáir í 15. umferð Bestu deildarinnar

Damir Muminovic.

Damir Muminovic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag hefst 15. umferð Bestu deildarinnar þegar topplið Víkings heimsækir botnlið Þróttar. Það er svo áhugaverður Reykjavíkurslagur í kvöld.

Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, tók að sér að spá í leikina sem framundan eru.
Þór 0 - 4 Víkingur R. (16:00 í dag)
Eins leiðinlegt og það er að segja það þá eru Víkingar búnir að vinna deildina og ég sé ekkert lið taka stig af þeim. Þórsarar hafa líka verið í alvöru brasi og þetta er ekki leikur sem þeir hefðu viljað fá á þessum tímapunkti.

Valur 1 - 3 Fram (19:15 í kvöld)
Rúnar er að gera frábæra hluti með Fram og ætli Kennie skori ekki bara þrjú mörk í þessum leik. Sennilega besta tímabilið hans hingað til. Valsmenn hafa verið slakir undanfarið, öruggur sigur Fram.

ÍBV 1 - 1 KA (14:00 á morgun)
Þetta verður mjög hægur og leiðinlegur leikur. Eiður skorar eftir horn fyrir ÍBV og hver annar en Adam Páls kemur KA-mönnum til bjargar í lokin.

KR 5 - 2 Stjarnan (16:00 á morgun)
Þetta verður markaleikur eins og flestir aðrir leikir hjá KR. Stjarnan er að fá nýja menn inn í liðið líka en það mun ekki breyta neinu, held ég, í þessum leik. Öruggur sigur KR.

FH 1 - 2 Breiðablik (19:15 á mánudag)
Það er komið að því að Blikar nái í þrjú stig í Krikanum. Það eru einhver meiðsli hjá Blikum en það mun ekki hafa áhrif á liðið í þessum leik. Viktor Örn og Ágúst Orri klára þennan leik.

Keflavík 2 - 1 ÍA (19:15 á mánudag)
ÍA er með betra lið á pappír, en Keflavík er alltaf Keflavík í Keflavík. Gísli Eyjólfsson kemur ÍA yfir en Stefan Ljubicic skorar tvö mörk fyrir Keflavík.

Fyrri spámenn:
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Fáum við þrennu frá Kennie?

Fáum við þrennu frá Kennie?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Páls.

Adam Páls.

Canon

Mynd: KA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.