Gosens sár út í Fiorentina - „Þessi saga átti skilið öðruvísi endi"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þjóðverjinn Robin Gosens gekk til liðs við Schalke frá Fiorentina á dögunum eftir að hans krafta var ekki lengur óskað hjá ítalska félaginu.
Gosens gekk til liðs við Fiorentina á láni frá Union Berlin árið 2024 og gekk alfarið til liðs við félagið ári síðar.
Honum var tjáð að hann væri ekki í áætlunum Fabio Grosso, sem tók við sem stjóri liðsins í sumar, og ætti ekki að mæta á æfingar á undirbúningstímabilinu.
„Ég var ánægður þegar ég fékk tækifæri til að spila fyrir Fiorentina fyrir tveimur árum. Mér datt ekki í hug að ég gæti verið ánægðari. Við fundum heimili hérna, fyrsta árið gekk ótrúlega vel, annað ótrúlega illa," sagði Gosens.
„Í dag lýkur kafla sem mér datt ekki í hug að myndi ljúka. Ekki svona, þetta var óvænt og þess vegna er þetta mjög sárt. Sú róttæka ákvörðun að útiloka mig úr hópnum hafði djúpstæð áhrif á mig, því ég tel að þessi saga hafi átt skilið öðruvísi endi. Félögin vilja með réttu að leikmenn finni fyrir kjarna sjálfsmyndar, þakklæti, virðingu og áreynslu, en það sama gildir öfugt.“
Gosens kom við sögu í 36 leikjum á síðustu leiktíð, skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú.