Fotbolti.net
18.07.26 - 12:04
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal að fá miðvörð frá erkifjendunum

Arsenal að fá miðvörð frá erkifjendunum
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal eru að ganga frá félagaskiptum enska miðvarðarins Elijah Upson frá erkifjendum og nágrönnum sínum í Tottenham.
Upson er 18 ára gamall og var að renna út á samningi hjá Tottenham um mánaðamótin.

Hann hafnaði nýjum samningi félagsins og valdi frekar að ganga til liðs við nágranna þeirra í Arsenal.

Varnarmaðurinn hefur samþykkt langtímasamning við Arsenal og mun spila með unglinga- og varaliðinu til að byrja með framtíðarsýn á að brjóta sér leið í aðalliðið.

Á síðasta tímabili spilaði hann 23 leiki í öllum keppnum með unglingaliðum Tottenham og skoraði eitt mark.

Upson á tvo leiki fyrir U18 ára landslið Englands og skorað eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.