Fotbolti.net
17.07.26 - 22:52
Helgi Inguson

Heimir: Ég þarf ekki að segja Árbæingum að mæta, ég veit að þeir mæta

Auglýsing
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Hvað segja menn í dag, það var góð orka í liðinu," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir leik í kvöld. Fylkir unnu sannfærandi sigur gegn Njarðvík í 14. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 1 Njarðvík
„Þeir eru að spila með 5-3-2 og það voru opnanir á vængjunum sem við nýttum okkur vel. Svo eru föstu leikatriðin farin að ganga aðeins betur líka. Þegar við náðum að færa boltann á milli vængja hratt, þá fengum við góðar opnanir," sagði Heimir þegar hann greindi fyrri hálfleik.

Fylkir mætti af miklum krafti inn í seinni hálfleik. Liðið skapaði sér urmul af færum og það var Guy Smit, markverði Njarðvíkur, að þakka að leikar fóru ekki verr fyrir gestina.

„Bæði á móti Ægi og Vestra duttum við svolítið niður í seinni hálfleik og fórum að verjast. En í dag reyndum við. En Guy Smit var frábær í markinu og kannski hefðum við mátt vanda okkur aðeins meira fyrir framan markið."

Fylkir mætir Aftureldingu í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á þriðjudaginn. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, sagði í viðtali að það væri skyldumæting fyrir alla Mosfellinga á leikinn. Gerir Heimir svipaðar kröfur til Árbæinga?

„Nei ég þarf ekkert að segja Árbæingum að mæta, ég veit alveg að þeir mæta. Þeir eru búnir að styðja liðið frábærlega í sumar og það verður engin breyting á því á þriðjudaginn," sagði Heimir að lokum.

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.