Tuchel: Er Trump vitnið þitt í þessu máli?

Thomas Tuchel

Mynd: EPA

Donald Trump gagnrýndi varnarsinnað skipulag Tuchel

Mynd: EPA

Thomas Tuchel

Mynd: EPA
Thomas Tuchel, þjálfari Englendinga, hefur svarað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eftir að hann gagnrýndi ákvarðanir hans í leiknum gegn Argentínu í undanúrslitum HM.

TENGT EFNI
Trump gagnrýnir Tuchel - „Settu besta leikmanninn í vörn“
Trump sagðist ekki skilja hvers vegna Tuchel hefði látið Harry Kane sinna jafn mikilli varnarvinnu gegn Argentínu, skömmu eftir að England komst í 1-0 forystu.
Margir hafa gagnrýnt ákvarðanir Tuchel, sem urðu til þess að enska liðið færði sig aftar á völlinn. Þjóðverjinn gefur þó lítið fyrir hávaðann í fjölmiðlum og enn minna fyrir ummæli Trumps.
„Er Donald Trump vitnið þitt í þessu máli? Ef þú ert að spyrja hvort ég sjái eftir ákvörðunum mínum þá er svarið nei. Ég sé ekki eftir neinu, en mér fannst við verða of passífir.“
„Við vörðumst í lágri blokk og þegar þú gerir það þarftu að verjast sem ein heild. Okkur tókst ekki að færa liðið framar á völlinn, en samheldnin og hugarfarið voru til staðar.“
„Við verjumst með tíu og ellefu leikmönnum. Við gerum þetta saman sem lið og byggjum á þeim liðsanda, samheldni og því hugarfari sem þessi hópur hefur þróað síðustu sex og hálfa vikuna. Það er ekki hægt að efast um það.“
„Ég tók nokkrar ákvarðanir og treysti innsæi mínu, reynslu og keppnisskapi. Ég gerði það sem ég taldi geta hjálpað liðinu að komast í úrslitin.“
„Ég hefði séð eftir því ef ég hefði ekki reynt að hjálpa liðinu eða brugðist við stöðunni. Ég sé hins vegar ekki eftir ákvörðununum sjálfum,“ sagði Tuchel.
Tuchel var einnig spurður út í ummæli þar sem skiptingar hans voru kallaðar heigulslegar, en vildi ekki láta draga sig inn í þá umræðu. Englendingar mæta Frökkum í bronsleiknum í kvöld og geta þá náð besta árangri enska liðsins í 60 ár.
„Ég les hvorki hrósið né tek mark á ummælum sem þessum. Ef við vinnum leikinn á morgun verður það besti árangur enska landsliðsins á HM í 60 ár. Þannig lít ég á þetta,“ sagði Tuchel.