Fotbolti.net
18.07.26 - 15:05
Brynjar Ingi Erluson

Everton skoraði fjögur - Hræðilegur dagur hjá markverðinum

Thierno Barry skoraði furðulegt mark

Thierno Barry skoraði furðulegt mark

Canon

Mynd: EPA

Everton og Newcastle United unnu góða sigra eru þau spiluðu sinn fyrsta æfingaleik á undirbúningstímabilinu.
Everton vann öruggan 4-0 sigur á skoska liðinu Dundee United. Beto, Thierno Barry, Harvey Foster og Dwight McNeil skoruðu mörkin.

Skoski markvörðurinn Harrison Sharp kom inn á hjá Dundee í hálfleik og átti erfiðan dag, en hann fékk á sig þrjú mörk eftir hlé.

Barry kom Everton í 2-0 á 69. mínútu eftir skrautleg mistök Sharp. Markvörðurinn var lengi að athafna sig með boltann fyrir utan vítateig og þegar hann reyndi loks að hreinsa frá marki fór boltinn af Barry og í netið.

Tvö síðustu mörk Everton komu einnig eftir mistök Sharp í uppspilinu og gestirnir nýttu sér þau af öryggi.

Joe Willock, William Osula og Sean Neave skoruðu mörk Newcastle í 3-0 sigri á Darlington, en leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum.

Northampton og Coventry City gerðu þá markalaust jafntefli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.