Messi: Þetta er algjör klikkun

Lionel Messi og Lamine Yamal fyrir nítján árum

Mynd: Af netinu

Lionel Messi, stjarna Argentínu, segir það algerlega sturlað að hann sé að fara mæta Lamine Yamal á HM, nítján árum eftir að hann hélt á fimm mánaða gömlum Yamal í myndatöku fyrir UNICEF.

TENGT EFNI
Þegar Messi baðaði sex mánaða Yamal
Móðir Lamine Yamal vann á sínum tíma keppni UNICEF þar sem verðlaunin voru myndataka með ungabarnið hennar og hinum tvítuga Lionel Messi.
Atvinnumannaferill Messi var þá að fara á flug, en hann hafði enga hugmynd um að barnið sem hann hélt á yrði síðar ein skærasta stjarna fótboltans.
Á morgun mætast Messi og Yamal í fyrsta sinn þegar Argentína og Spánn eigast við í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
Messi segir það hreint út sagt klikkun að leiðir þeirra skuli liggja saman í úrslitaleik HM.
„Þetta er ótrúleg mynd og sú staðreynd að við séum nú báðir að spila á HM er algjör klikkun.“
„Hann er einn besti leikmaður heims í dag. Ég óska honum alls hins besta því árangur hans mun einnig skila Barcelona árangri. Við munum þó gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að hann eigi frábæran leik, en hann er auðvitað ekki eini stórkostlegi leikmaðurinn í spænska liðinu.“
„Hann er algjörlega stórkostlegur leikmaður og orðinn heimsstjarna aðeins 19 ára gamall. Hann á allan ferilinn fram undan.“
„Eins og ég sagði óska ég honum alls hins besta, en við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að hann verði ekki heimsmeistari í þetta sinn,“ sagði Messi.