Yndislegt að vera loksins kominn í KA - „Vil helst ekki tjá mig um það"

Mættur í KA og getur spilað gegn ÍBV á sunnudaginn.

Mynd: KA

Var í rúmlega þrjú tímabil hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Setur stefnuna á sæti í efri hluta Bestu deildarinnar.

Mynd: KA

Börkur var formaður fótboltadeildar Vals fyrstu ár Adams hjá félaginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Mér þykir vænt um marga í kringum klúbbinn og eignaðist marga góða vini'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur í KA og getur spilað gegn ÍBV á sunnudaginn.

Mynd: KA
Sóknarmaðurinn hefur nokkuð reglulega verið orðaður við KA síðustu ár en ekki samið fyrir norðan fyrr en nú. Hann ræddi við Fótbolta.net fyrir æfingu KA liðsins í gær.
„Mér finnst KA vera á uppleið, vera með virkilega gott lið og spennandi þjálfara. Mér finnst allt í kringum klúbbinn vera í toppstandi og finnst KA eiga mjög mikið inn."
Kærasta Adams, Mónika Birta, er frá Akureyri en hún verður fyrir sunnan. Eru engar líkur á að hann verði áfram í KA til lengi tíma?
„Alltaf opinn fyrir því, það þarf bara að sjá hvernig þetta gengur. Ég þarf að sjá hvernig það er búa á Akureyri, þú talar vel um að það, þannig ég býst við ekki neinu öðru. Við sjáum bara til."
Adam setur stefnuna á efri helminginn í Bestu deildinni. „Það er stutt í það, við viljum tengja saman sigra. Ég vil ná festu í minn leik, ná að spila í hverri viku og njóta þess að spila fótbolta. Ég hef verið inn og út úr liðinu síðustu ár, nú er kominn tími á að festa sig í sessi og fá mínútur í öllum leikjum."
Umræðan um KA er sú að það sé mikið úrval af sóknarmönnum, mönnum sem geta spilað sömu stöður og Adam.
„Mér líst gríðarlega vel á samkeppnina, held að hún sé alltaf góð, geri öllum gott. Við erum með gott lið á heildina litið. Ég vonast til að geta gefið liðinu mörk og stoðsendingar og sigurhugarfar. Ég hef verið í liðum sem eru búin að vera berjast um titla og vinna titla, þannig ég tel mig geta komið með einhvers konar reynslu af því."
Adam var orðaður við fleiri félög, m.a. grannana í Þór. Var valið erfitt að lokum?
„Já, ég myndi segja það. Ég er þakklátur fyrir áhugann sem ég fékk frá mörgum liðum. Það er virkilega gaman að vita að lið vilji fá mann, gaman að finna fyrir ást. Ég taldi þetta vera besta ákvörðunin."
Fyrsti heimaleikur KA verður annan mánudag þegar Þór kemur í heimsókn. Þegar viðtalið var tekið var miðasala fyrir nágrannaslaginn í fullum gangi og röð út úr KA heimilinu.
„Það verður virkilega gaman, aldrei spilað í Akureyrarslag en hef heyrt góða hluti. Ég hef spilað stóra leiki, eins og þegar Víkingur tryggði sér titilinn 2021 og í bikarúrslitaleikjum. Ég held að þetta sé aðeins öðruvísi, aðeins persónulegra hjá fólki. Ég er gríðarlega spenntur."
„Þetta er bara sturlað, held þetta verði ein besta aðstaðan á landinu þegar hún verður klár. Gott fyrir KA, félagið á þetta skilið, menn í klúbbnum hafa lagt hart að sér til að ná þessu í gegn."
En af hverju er Adam farinn frá Val?
„Það er margt. Ég tel að akkúrat núna hafi verið best að fara, fá að spila fótbolta og ná að njóta mín. Mér leið best með að koma hingað."
„Það er aldrei gaman að fara úr félagi þar sem maður hefur verið í fjögur ár og þykir vænt um. Mér þykir vænt um marga í kringum klúbbinn og eignaðist marga góða vini. Auðvitað er það súrt og leiðinlegt, en svona er bara fótbolti."
Í síðustu leikjum Hermanns Hreiðarssonar sem þjálfara Vals var Adam ónotaður varamaður. „Ég veit svo sem ekki ástæðuna fyrir því, það hefur væntanlega eitthvað haft með framtíð mína að gera. Svona er bara fótbolti, þú verður að taka því vonda og því góða."
Skömmu áður en viðtalið var tekið ritaði Adam færslu á samfélagsmiðla þar sem hann kvaddi Val og stuðningsmenn félagsins, hann þakkaði fyrrum stjórn félagsins fyrir og hrósaði fyrrum formanni, Berki Edvardssyni, sérstaklega. Ertu svekktur út í núverandi stjórn Vals?
„Alls ekki, mér finnst Börkur eiga skilið að fá skilaboð frá mér, hann fékk mig í Val og er búinn að gera gríðarlega mikið fyrir mig og við erum orðnir góðir vinir í dag. Hann hefur hjálpað mér gríðarlega mikið, líka í gegnum erfiða tíma. Hann studdi við bakið á mér í hvert einasta skipti."
Eftir að Hermann var látinn fara voru fréttir af því að Adam hefði verið að æfa einn hjá Val, að hann væri ekki lengur hluti af leikmannahópi liðsins. Var það eitthvað sem þú vildir?
„Ég vil helst ekki tjá mig um það," segir Adam.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.

Var í rúmlega þrjú tímabil hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Setur stefnuna á sæti í efri hluta Bestu deildarinnar.

Mynd: KA

Börkur var formaður fótboltadeildar Vals fyrstu ár Adams hjá félaginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Mér þykir vænt um marga í kringum klúbbinn og eignaðist marga góða vini'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 15 | +17 | 32 |
| 3 | Fram | 14 | +12 | 30 |
| 4 | Breiðablik | 14 | +8 | 25 |
| 5 | Valur | 15 | -5 | 19 |
| 6 | Keflavík | 14 | -7 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 14 | -26 | 8 |




