Trump gagnrýnir Tuchel - „Settu besta leikmanninn í vörn“

Donald Trump var undrandi á ákvörðun Tuchel

Mynd: EPA

Trump er mikill aðdáandi Kane

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt varnarsinnaða nálgun Thomas Tuchel í 2-1 tapi Englendinga gegn Argentínu í undanúrslitum HM.

TENGT EFNI
Trump og Kane fóru saman í golf
Trump var, líkt og margir aðrir, undrandi á því að Englendingar skyldu leggjast aftur á völlinn skömmu eftir að Anthony Gordon kom þeim yfir snemma í síðari hálfleik.
Ezri Konsa kom inn á fyrir Gordon og fylgdu tvær varnarsinnaðar breytingar í kjölfarið.
Argentínumenn nýttu sér það, skoruðu tvö mörk undir lok leiksins og tryggðu sér sæti í úrslitum heimsmeistaramótsins annað mótið í röð.
Trump spilaði golf með Harry Kane, fyrirliða Englands, á dögunum. Hann gagnrýndi ákvörðun Thomas Tuchel um að láta liðið falla svona aftarlega í stað þess að nýta sóknarstyrkleika Kane.
„Það er frábær leikmaður í enska landsliðinu sem ég spilaði golf með. Það er Harry Kane og hann hefur verið alveg stórkostlegur,“ sagði Trump.
Hann gagnrýndi síðan nálgun Tuchel gegn Argentínumönnum.
„Ég held að þeir hafi mögulega gert mistök þegar þeir fóru að láta hann verjast. Hvað veit ég svo sem um fótbolta? Þeir komust yfir og létu síðan besta leikmann sinn verjast.“
„Við verðum að vera aðeins sókndjarfari, er það ekki? En ég ætla ekki að dæma um það. Hvað veit ég um þjálfun? Þetta var samt fremur óvenjulegt. Harry er annars frábær náungi,“ sagði Trump.

?????????????| Donald Trump on Harry Kane and Thomas Tuchel’s defensive approach:pic.twitter.com/RuVGAK2lHa
— CentreGoals. (@centregoals) July 17, 2026

Trump er mikill aðdáandi Kane

Mynd: EPA