Fotbolti.net
18.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Libby Moore til Akureyrar (Staðfest)

Libby Moore til Akureyrar (Staðfest)
Canon

Mynd: Þór/KA

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur samið við bandaríska miðjumanninn Libby Moore um að leika með liðinu út tímabilið.

Moore er 25 ára gömul en hún hefur mikla reynslu úr Evrópuboltanum. Hún hefur spilað með Fortuna Hjörring í Danmörku, Shelbourne á Írlandi og bandarísku liðunum Gotham og Lexington. Nú síðast var hún á mála hjá Þýska félaginu Turbine Potsdam.
Bríet Fjóla í Þrótt (Staðfest)
TENGT EFNI

Bríet Fjóla í Þrótt (Staðfest)

„Ég á nokkrar vinkonur frá Bandaríkjunum sem hafa spilað í íslensku deildinni og þær hafa allar átt hér jákvæða upplifun. Ég veit að í ár er þetta mjög jöfn deild og hörð samkeppni, frá efstu sætum til þeirra neðstu svo hver einasti leikur verður erfiður. Ég er því spennt fyrir áskoruninni og spennt að komast á völlinn og gera mitt besta til að hjálpa liðinu,“ sagði Moore.

Þór/KA greindi einnig frá því að Bríet Jóhannsdóttir og Emelía Ósk Krüger væru á leiðinni í háskóla í Bandaríkjunum og spila fótbolta þar.

Besta kvenna

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.