Fotbolti.net
17.07.26 - 22:23
Helgi Inguson

Davíð Smári ósáttur: Gjörsamlega hræðilegir í fyrri hálfleik

Auglýsing
Davíð Smári segir liðið sitt hafa verið huglaust á boltanum

Davíð Smári segir liðið sitt hafa verið huglaust á boltanum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Við vorum gjörsamlega hræðilegir í fyrri hálfleik. Algjörlega andlaust og lélegt, bara rosalega langt frá okkar besta," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, eftir leik liðsins gegn Fylki í kvöld. Njarðvíkurliðið fékk á sig fjögur mörk í fyrri hálfleik og tapaði leiknum 4-1 .
Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 1 Njarðvík
„Við vitum að Fylkisliðið hefur enn ekki unnið leik sem það hefur lent undir í. Þannig að við vissum að þetta fyrsta mark gæti orðið mjög mikilvægt, en það tókst ekki. Við fengum tvö gríðarlega góð færi áður en þeir skora fyrsta markið og það er auðvitað svekkjandi. En staðan er sú að við áttum ekkert annað skilið í fyrri hálfleik en að vera 4-0 undir," sagði Davíð Smári en Njarðvíkurliðið fékk færi til þess að komast yfir í byrjun leiks.

„Mér fannst þetta andlaust, mér fannst þetta líta út eins og við héldum að við værum betri en við erum. Eins og þetta kæmi til okkar. Færslunar okkar voru lélegar, bakvörðurinn gat labbað upp völlinn með boltann 40-50 metra, miðjan okkar var ekki klár í neinar varnarfærslur. Við vorum seinir og sloppy á alla seinni bolta, sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég hef sjaldan séð liðið mitt jafn langt frá því að vinna návígi."

Er eitthvað sem hægt er að taka með sér úr leiknum?

„Þeir leikmenn sem komu inn stóðu sig vel. Mér fannst þeir koma inn með orku en ekki uppgjöf. Það er erfitt að koma inn í svona seinni hálfleik þar sem leikurinn er allt að því tapaður. Við verðum að taka það með okkur ásamt frábærri frammistöðu frá Guy (Smit)," sagði Davíð Smári að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum fyrir ofan þar sem Davíð Smári ræðir m.a. félagsskipti Guðmunds Magnússonar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.