Fotbolti.net
11.08.17 - 16:45
Magnús Már Einarsson

Þurfa frestun í 4. deildinni út af heyskap

Þurfa frestun í 4. deildinni út af heyskap
Canon

Mynd: Samsett

Búið er að fresta leik Hrunamanna og Ýmis sem fara átti fram í 4. deildinni á morgun.

Hrunamenn koma frá Flúðum og margir leikmenn liðsins komast ekki í leik á morgun þar sem heyskapur er í fullum gangi.
Yfirlýsing Hrunamanna
Forráðarmenn Hrunamanna harma það að þurfa að biðla til Knattspyrnusambands Íslands um fresta leiknum gegn góðvinum okkar í Ými.

Almenn sveitastörf, velferð dýranna sem og óseðjandi þörf landsmanna fyrir mjólkuvörum um helgina eru þess valdandi.
Þurkur, heyskapur og kýrnar þurfa að vera í fyrsta sæti í þetta skipti

Fyrir hönd Hrunamanna,

-Jón Þorgeir Aðalsteinsson, spilandi þjálfari Hrunamanna, vatnsberi og óðalsbóndi

Leik Ýmis og Hrunamanna frestað vegna þess að Hrunamenn ná ekki í lið vegna heyskaps um helgina. Alltaf eiithvað nýtt í #passionleague

— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) August 11, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.