Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. ágúst 2020 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ótrúleg endurkoma Spezia - Spila í úrslitum
Sveinn Aron Guðjohnsen og félagar eru komnir í úrslit umspilsins
Sveinn Aron Guðjohnsen og félagar eru komnir í úrslit umspilsins
Mynd: Getty Images
Spezia 3 - 1 Chievo
1-0 Andrey Galabinov ('2 )
2-0 Giulio Maggiore ('50 )
3-0 Mbala Nzola ('53 )
3-1 Maxime Leverbe ('90, víti )

Sveinn Aron Guðjohnsen og félagar í Spezia eru komnir í úrslit um sæti í Seríu A eftir 3-1 sigur á Chievo.

Chievo vann fyrri leikinn 2-0 og þurfti því Spezia á kraftaverki að halda í síðari leiknum.

Andrey Galabinov kom Spezia yfir á 2. mínútu áður en Giulio Maggiore bætti við öðru á 50. mínútu. Mbala Nzola gerði þriðja markið þremur mínútum síðar.

Maxime Leverbe minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu undir lokin og lokatölur því 3-1. Spezia fer áfram í úrslit umspilsins þar sem liðið endaði ofar í deildinni en Chievo.

Sveinn Aron sat allan tímann á varamannabekk Spezia en liðið mætir annað hvort Frosinone eða Pordinone í úrslitum umspilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner