Fotbolti.net
11.08.26 - 10:49
Elvar Geir Magnússon

Búin að skipta á McNeil og Johnson (Staðfest)

Brennan Johnson er farinn frá Palace til Everton.

Brennan Johnson er farinn frá Palace til Everton.

Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace og Everton hafa staðfest skipti á leikmönnum. Palace fær Dwight McNeil og Everton fær í skiptum Brennan Johnson.

Báðir þessir sóknarleikmenn hafa skrifað undir fjögurra ára samning hjá nýjum vinnuveitendum.

Palace hefur um nokkurt skeið haft áhuga á hinum 26 ára McNeil og var nálægt því að tryggja sér hann í síðasta janúarglugga. Á síðustu stundu gekk það ekki í gegn.

Nú er McNeil hinsvegar mættur á Selhurst Park í skiptum fyrir velska landsliðsmanninn Johnson sem er 25 ára.

„Það eru ýmsar ástæður fyrir því að ég var svona spenntur að skrifa undir. Stjórinn David Moyes er þar á meðal, leikmannahópurinn og stefna félagsins," segir Johnson, hæstánægður með að vera kominn til Everton.

Everton og Palace mætast á Hill Dickinson leikvangnum 22. ágúst, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Dwight McNeil.

Dwight McNeil.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.