11.08.26 - 10:54
Elvar Geir Magnússon
Charles til Fulham (Staðfest) - „Titra af spennu“

Shea Charles í leik með Norður-Írlandi.

Mynd: EPA

Shea Charles í leik með Norður-Írlandi.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Shea Charles, 22 ára, kominn til Fulham frá Southampton. Um er að ræða 26 milljóna punda kaupverð sem gæti hækkað eftir ákvæðum um 4 milljónir punda til viðbótar.
„Ég titra af spennu yfir því að þetta sé komið yfir línuna. Þetta er mjög gott félag með mjög góða sýn. Það eru forréttindi að vera hér," segir Charles.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Alvaro Arbeloa fær til Fulham í sumar á eftir Gonzalo Garcia, Cesar Palacios og Jonah Kusi-Asare.
Charles er norður-írskur landsliðsmaður sem hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína undanfarin ár. Hann hefur reglulega verið orðaður við stærri félög og fær nú tækifæri til að taka næsta skref á ferlinum.
Charles er uppalinn hjá Manchester City og lék einn leik í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2022-2023. Hann gekk til liðs við Southampton árið 2023 og hjálpaði félaginu að komast upp í úrvalsdeildina.
Hann var síðan lánaður til Sheffield Wednesday þar sem hann sló í gegn og var valinn besti leikmaður liðsins. Charles sneri aftur til Southampton síðasta sumar og fylgdi góðu tímabili eftir með því að koma að átta mörkum í 38 leikjum.

Fulham, SW6. ???? pic.twitter.com/8XMlJWBUj4
— Fulham Football Club (@FulhamFC) August 11, 2026