11.08.26 - 10:59
Elvar Geir Magnússon
Diomande kynntur hjá Forest (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur kynnt varnarmanninn Ousmane Diomande sem sinn nýjasta leikmann. Hann er keyptur frá Sporting Lissabon.
„Ég trúi því að við getum gert mjög góða hluti á tímabilinu og ég hlakka til að hitta stjórann og nýju liðsfélagana," segir Diomande en Oliver Glasner, nýr stjóri Forest, er mjög hrifinn af leikmanninum og reyndi að fá hann til Palace.
Diomande er 22 ára gamall miðvörður sem hóf atvinnumannaferilinn hjá Midtjylland í Danmörku. Hann gekk til liðs við Sporting árið 2022 og varð tvívegis portúgalskur meistari með félaginu.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Forest fær í sumar. Áður höfðu Xaver Schlager, sem kom á frjálsri sölu frá Leipzig, og Gustavo Sa frá Famalicao gengið til liðs við félagið.

Our fortress has been built, now it’s time to defend it. pic.twitter.com/HoxsTHFqJ5
— Nottingham Forest (@NFFC) August 11, 2026