Fotbolti.net
11.08.26 - 17:11
Kári Snorrason

Kalvin Phillips snýr aftur til Sheffield Utd (Staðfest)

Kalvin Phillips snýr aftur til Sheffield Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Sheffield United

Kalvin Phillips er genginn í raðir Sheffield United frá Man City á eins árs löngu láni. Phillips lék með Sheffield seinni hluta síðasta tímabili á láni frá City.

Þessi þrítugi miðjumaður hefur verið á mála hjá Man City frá 2022 en aldrei fundið taktinn. Á þessum fjórum árum sem leikmaður liðsins hefur Phillips aðeins spilað 32 leiki fyrir félagið.

Hann var keyptur frá Leeds United þar sem hann hafði verið frábær. Phillips skrifaði undir sex ára samning við City sem rennur út sumarið 2028.

Sheffield er þriðja liðið sem hann fer til á láni sem leikmaður City en hann hefur jafnramt mátað sig hjá West Ham og Ipswich.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.