Fotbolti.net
11.08.26 - 14:05
Kári Snorrason

Myndband: Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum

Myndband af atvikinu má sjá neðst í fréttinni.

Myndband af atvikinu má sjá neðst í fréttinni.

Canon

Mynd: Skjáskot

Hólmbert Aron Friðjónsson bjargaði manni úr brennandi bíl í Suður-Kóreu um helgina.

Rúv greinir frá en atvikið átti sér stað á hraðbraut í Suður-Kóreu þar sem Hólmbert var að ferðast heim í liðsrútu Gwangju FC eftir útileik.

Bíllinn stóð í ljósum logum utanvegar eftir að hafa lent í árekstri á hraðbraut og nam liðsrútan staðar við logandi bílinn.

Bílstjórinn var enn í bílnum og virtist hann vera meðvitundarlaus. Hólmbert, ásamt liðsfélaga sínum og sjúkraþjálfara Gwangju, hjálpuðu ökumanninum út úr bílnum sem var orðinn alelda skömmu síðar.

„Það voru allir eiginlega smá hræddir við að bíllinn myndi bara springa eins og í bíómyndunum. Þannig það var eiginlega verið að banna okkur að fara eitthvað út úr rútunni,“ segir Hólmbert í samtali við Rúv.

Hetjudáðin hefur vakið mikla athygli í Suður-Kóreu og hafa ýmsir fréttamiðlar fjallað um björgunina. Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.
Hólmbert gekk í raðir Gwangju fyrir ári síðan.

Hólmbert gekk í raðir Gwangju fyrir ári síðan.

Canon

Mynd: Gwangju FC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.