11.08.26 - 09:28
Kári Snorrason
Trump: Væru hræðileg mistök að skipta Infantino út

Trump kemur Infantino til varnar.

Mynd: EPA

Hefur verið mikið á milli tannana á fólki.

Mynd: EPA

Trump kemur Infantino til varnar.

Mynd: EPA
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að það yrðu hræðileg mistök ef Gianni Infantino, forseta FIFA, yrði vikið úr starfi.
Mikið hefur verið rætt og ritað um Infantino síðustu daga og vikur. Ekkert lát var á því í gær en UEFA, CONCACAF og Knattspyrnusamband Asíu (AFC) gáfu út opið bréf þar sem Infantino var sakaður um trúnaðarbrot.
Var það vegna umdeildra áforma hans um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA.

TENGT EFNI
Þrjú álfusambönd höggva í Infantino í nýrri yfirlýsingu
„FIFA myndi gera hræðileg mistök ef það, af einhverri ástæðu, íhugaði jafnvel að skipta út forsetanum Gianni Infantino. Hann er frábær.
Hann er nýbúinn að stýra best heppnaða heimsmeistaramóti sögunnar. Það var fjórum sinnum betur heppnað en nokkurt annað sem haldið hefur verið. Ef hann fer mun það aldrei verða jafn vel heppnað eða arðbært aftur,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social.
Áform FIFA um að hleypa fjárfestum að HM og fleiri innviðum tengist Trump sterklega. Fjárfestingarsjóðurinn sem FIFA átti í viðræðum við, Thrive Capital, er undir stjórn Josh Kushner en bróðir hans, Jared Kushner, og Ivanka dóttir Donald Trump eru gift.