Fotbolti.net
11.08.26 - 10:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Helgi spurður út í þrjá leikmenn - „Vona hans vegna að hann spili ekki út þennan samning"

Freyr Sigurðsson

Freyr Sigurðsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram, var sérstaklega spurður út í þrjá leikmenn í viðtali eftir tapið gegn KR í gær.

Miðjumaðurinn Freyr Sigurðsson hefur verið mjög öflugur að undanförnu og orðaður við atvinnumennsku. Atli Þór Jónasson hefur glímt við meiðsli síðasta mánuðinn og Simon Tibbling fékk höfuðhögg í síðasta leik á undan og var ekki með í gær.
Kæmi mjög á óvart ef Fram fengi að njóta krafta hans næsta sumar
TENGT EFNI

Kæmi mjög á óvart ef Fram fengi að njóta krafta hans næsta sumar

Um Frey Sigurðsson
Freyr skrifaði undir nýjan samning á dögunum sem gildir út 2029, býst þú við að hann spili með Fram út þann samning?

„Ég vona hans vegna að hann spili ekki út þennan samning. Hann er búinn að vera frábær fyrir okkur í sumar og undanfarin ár. Hann er að taka stórstígum framförum og er einn af bestu miðjumönnunum í þessari deild. Ef hann spilar áfram á þessu getustigi sem hann hefur sýnt í allt sumar, þá hljóta einhver lið að bera víurnar í hann. En við reynum að njóta hans krafta eins lengi og hægt er."

Um Simon Tibbling
„Hann er ekki búinn að ná sér eftir höfuðhöggið í síðasta leik. Við verðum bara að sjá til í vikunni hvort það lagist fljótlega eða taki aðeins lengri tíma. Venjulega taka svona höfuðhögg 2-3 vikur, þannig við þurfum að búast við því."

Um Atla Þór
„Hann er búinn að vera tognaður, það styttist í hann en eru þó 1-2 vikur í hann líka," sagði Helgi.
Simon Tibbling

Simon Tibbling

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór Jónasson

Atli Þór Jónasson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig: Grófum okkur í ansi stóra holu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.