11.08.26 - 13:43
Elvar Geir Magnússon
Spjallaði við kærustu McNeil áður en hann var keyptur

Dwight McNeil.

Mynd: Crystal Palace

McNeil í leik með Everton.

Mynd: EPA

Dwight McNeil.

Mynd: Crystal Palace
Dwight McNeil gekk í raðir Crystal Palace í dag en Steve Parish, stjórnaformaður félagsins og meðeigandi, spjallaði við kærustuna hans áður en gengið var frá skiptunum frá Everton.
McNeil var næstum genginn í raðir Crystal Palace í janúarglugganum en það rann út í sandinn á síðustu stundu þegar pappírsvinnu var ekki lokið á tilsettum tíma. McNeil hafði þá staðist læknisskoðun.
Kærastan hans, Megan Sharpley, steig þá fram á ritvöllinn á og sakaði Palace um að spila með geðheilsu síns manns. Hún sagði að parið hefði búið sig undir að flytja til Lundúna en skyndilega hafi hann hætt að fá upplýsingar fr´félaginu.
„Við lifum í heimi þar sem fólk gerir sér grein fyrir mikilvægi andlegrar heilsu. Er eðlilegt að koma svona fram við fótboltamenn því þeir fá mikið borgað? Er í lagi að spila með andlega heilsu þeirra því það á bara að vera hluti af starfinu?" skrifaði Megan á Instagram.

TENGT EFNI
Niðurbrotin og segir spilað með andlega heilsu kærasta síns
Enskir fjölmiðlar segja að Parish hafi sett sig í samband við Megan til að lægja öldurnar áður en gengið yrði frá skiptunum.
„Liðið hefur náð frábærum árangri síðustu tvö tímabil, það er eitthvað sem ég vil taka þátt í," sagði McNeil eftir að hafa skrifað undir í dag. Palace hefur síðustu ár unnið FA-bikarinn, Sambandsdeildina og Samfélagsskjöldin.