11.08.26 - 11:54
Elvar Geir Magnússon
Sevilla kaupir Skota sem raðaði inn mörkum í Svíþjóð (Staðfest)

Ure mun klæðast treyju númer 9 hjá Sevilla.

Mynd: Sevilla

Sevilla hefur samið við skoska sóknarmanninn Robbie Ure sem er keyptur frá IK Sirius, sem situr á toppi sænsku deildarinnar, fyrir 5,5 milljónir punda í upphafsgreiðslu.
Þessi 22 ára gamli leikmaður gekkst undir læknisskoðun á mánudag og skrifaði undir fimm ára samning. Kaupverðið gæti hækkað um 2 milljónir punda eftir ákvæðum.
Ure, sem hefur leikið með skoska U19-landsliðinu, hefur vakið mikla athygli víða um Evrópu eftir að hafa skorað 20 mörk og lagt upp þrjú í 20 leikjum í öllum keppnum á yfirstandandi tímabili í Svíþjóð.
Hann hóf ferilinn hjá Rangers, þar sem hann skoraði eitt mark í þremur leikjum með aðalliðinu, áður en hann gekk til liðs við belgíska félagið Anderlecht árið 2023, en þar lék hann aðeins einn leik með aðalliðinu.
Ferill hans hefur hins vegar tekið mikinn kipp í Svíþjóð; hann hefur skorað 31 mark og lagt upp sjö í 50 leikjum síðan hann gekk til liðs við Sirius í mars 2025. Mörkin 15 í deildinni hafa fleytt liðinu á topp Allsvenskunnar, þar sem það hefur örugga 12 stiga forystu.
Ure er einnig gjaldgengur fyrir Úkraínu en sagði við breska ríkistútvarpið að hann vildi frekar bíða eftir kalli frá skoska landsliðinu.

???? Nuestro nuevo 9?????????????????????????????? pic.twitter.com/vypLGHSPVl
— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) August 11, 2026