Fotbolti.net
11.08.26 - 12:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það vakti athygli í gær að maður á þrítugsaldri hefði verið á meðal boltasækjara þegar Fram og KR áttust við í Bestu deildinni.

Framarinn Hilmar Þór Sólbergsson tók þátt í Fantasy leiknum vinsæla á síðasta tímabili og var refsingin fyrir að enda í neðsta sæti að vera boltasækjari á leik í Bestu deildinni.

Hilmar er uppalinn hjá Fram, er fæddur 2001 og hefur leikið með Hvíta riddaranum undanfarin ár.
„Þetta var bara gamla góða Fantasy refsingin, ég endaði neðstur í minni deild. Þetta var mjög skrítið fannst mér í aðdragandanum og svona fyrstu 20 mínúturnar af leiknum. Veðrið gerði þetta svo vissulega skárra," segir Hilmar.

Fékkstu einhver skot á þig frá félögunum eða jafnvel ættingjum?

„Nei nei, ekkert svoleiðis, held að flestir hafi bara haft gaman að þessu. Strákarnir sátu fyrir aftan mig og klöppuðu fyrir mér fyrstu skiptin sem ég kastaði til leikmanna," segir Hilmar léttur.

Hafliði Breiðfjörð tók meðfylgjandi myndir.
Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók út Fantasy refsingu á Lambhagavellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.