Fotbolti.net
11.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alexis Sanchez á leið til Kanada

Alexis Sanchez á leið til Kanada
Canon

Mynd: EPA

Alexis Sanchez, fyrrum leikmaður Barcelona, Arsenal og Man Utd, er á leið í bandarísku MLS deildina.

Hann er á leið til kanadíska félagsins CF Montreal en hann skrifar undir tveggja ára samning.
Þessi 37 ára gamli sóknarmaður spilaði með Sevilla í spænsku deildinni á síðustu leiktíð. Hann kom við sögu í 30 leikjum og skoraði fjögur mörk.

CF Montreal er í 14. sæti Austurdeildar með 16 stig eftir 18 umferðir. Dagur Dan Þórhalsson gekk til liðs við félagið frá Orlando City í desember en skipti yfir til San Diego í síðasta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.