11.08.26 - 14:48
Elvar Geir Magnússon
Vlahovic á barmi þess að fara til Besiktas

Dusan Vlahovic í leik með Serbíu.

Mynd: EPA

Dusan Vlahovic í leik með Serbíu.

Mynd: EPA
Nýjustu fregnir frá Ítalíu herma að Dusan Vlahovic sé við það að ganga til liðs við tyrkneska úrvalsdeildarliðið Besiktas, eftir að hafa yfirgefið Juventus þegar samningur hans rann út 30. júní.
Serbneski landsliðsmaðurinn, sem gekk til liðs við Juve fyrir 70 milljónir evra auk bónusgreiðslna, var launahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar á síðasta ári samnings síns.
Þrátt fyrir að Juventus hafi reynt að semja um framlengingu á lækkuðum launum stóran hluta síðasta árs, náðist ekki samkomulag um slíkt.
Vlahovic, sem er 26 ára sóknarmaður, vill vera áfram í Evrópu. Vincenzo Italiano, fyrrum þjálfari Vlahovic hjá Fiorentina, tók nýlega við þjálfun Besiktas.