11.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óskar Hrafn: Notalegt að vita til þess að við erum ekki algjörlega háðir honum

Aron Sigurðarson í leiknum í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson í leiknum í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann magnaðan 5-2 sigur á Fram í Bestu deildinni í gær. KR er í 2. sæti með 39 stig, sex stigum á eftir Víkingi og tveimur stigum á undan Fram sem er í 3. sæti.
Aron Sigurðarson hefur verið stórkostlegur í sumar en hann hefur skorað 16 mörk og lagt upp sjö í 18 leikjum í deildinni. Hann kom hins vegar ekki að neinu marki í gær.
Aron Sigurðarson hefur verið stórkostlegur í sumar en hann hefur skorað 16 mörk og lagt upp sjö í 18 leikjum í deildinni. Hann kom hins vegar ekki að neinu marki í gær.
„Það er notalegt að vita til þess að við erum ekki algjörlega háðir honum. Það eru aðrir sem geta stigið upp. Galdur er að koma frábærlega sterkur inn," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Auðvitað vil ég að Aron skori og leggi upp en það skiptir engu máli."
„Auðvitað vil ég að Aron skori og leggi upp en það skiptir engu máli."
