11.08.26
Spáin fyrir enska - 12. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Það er komið að því að opinbera liðið sem endaði í tólfta sæti í spá Fótbolta.net fyrir ensku úrvalsdeildina en það er Brentford.
Brentford fór gegn öllum spám á síðasta tímabili. Eftir að Thomas Frank yfirgaf félagið og Keith Andrews tók við töldu margir að Brentford myndi dragast niður í fallbaráttuna og sérstaklega eftir að lykilmenn á borð við Christian Norgaard, Bryan Mbeumo og Yoane Wissa kvöddu félagið. Enn á ný sýndi hins vegar strúktúrinn innan félagsins styrk sinn og Brentford var hársbreidd frá því að tryggja sér Evrópusæti.
Keith Andrews stóð sig frábærlega á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari og nú er næsta markmið skýrt: Að koma Brentford í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Til þess þarf liðið þó að finna meiri stöðugleika í sóknarleiknum og dreifa markaskoruninni betur, í stað þess að treysta á fáa leikmenn.
Brentford hefur á undanförnum árum skapað sér orðspor sem eitt best rekna félag Englands, þar sem snjöll leikmannakaup og skýr stefna hafa skilað árangri. Félagið virðist enn vera á réttri leið og hefur sýnt að það getur keppt við sterkustu lið ensku úrvalsdeildarinnar. Næsta skref er að breyta þeim stöðugleika í Evrópusæti.
Stjórinn: Keith Andrews þaggaði fljótt niður í gagnrýnendum sínum á síðasta tímabili. Írinn tók við Brentford eftir brotthvarf Thomas Frank og margir óttuðust að félagið myndi jafnvel falla. Byrjunin var vissulega erfið, en Andrews náði að snúa genginu við og stýrði Brentford til jafnbesta árangurs félagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liðið var aðeins marki frá sæti í Sambandsdeild Evrópu og stigi frá Evrópudeildinni. Andrews er enn að móta sína eigin hugmyndafræði sem stjóri, en fyrsta tímabilið gaf sterk fyrirheit um að Brentford sé í öruggum höndum til framtíðar.

Mynd: EPA
Leikmannaglugginn: Brentford hefur síðustu ár sýnt að félagið er eitt það snjallasta á leikmannamarkaðnum. Félagið hefur bætt við sig fjórum leikmönnum hingað til í sumar.
Komnir:
Mamadou Sangaré frá Lens - 39 milljónir punda
Jaidon Anthony frá Burnley - 15 milljónir punda
Jannik Schuster frá Red Bull Salzburg - 14 milljónir punda
Callum Wilson frá West Ham - Á frjálsri sölu
Farnir:
Jordan Henderson til Chelsea - Á frjálsri sölu
Frank Onyeka til Coventry City - Óuppgefið kaupverð
Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Igor Thiago
Igor Thiago verður enn helsta von Brentford í sóknarleiknum. Brasilíski framherjinn átti stórkostlegt síðasta tímabil, endaði næstmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni og vann sér sæti í HM-hópi Brasilíu með frammistöðu sinni. Thiago er öflugur alhliða framherji með kraft, hraða og góða tækni, en vinnur einnig gríðarlega mikið fyrir liðið án bolta. Markaskorun Thiago gæti ráðið úrslitum um hvort Brentford tekst loksins að tryggja sér Evrópusæti.
Gaman að fylgjast með: Mamadou Sangare
Brentford fjárfest í einum mest spennandi unga leikmanni Evrópu í Sangare. Miðjumaðurinn vakti mikla athygli með Lens og núna er hann mættur í ensku úrvalsdeildina. Brentford hefur mikla trú á honum og það sést í verðmiðanum en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins, kostaði 39 milljónir punda. Við Íslendingar munum einnig fylgjast grannt með Hákoni Rafni Valdimarssyni en þó verður hann í hlutverki varamarkvarðar.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan fyrir Brentford væri sú að komast í Evrópukeppni í fyrsta sinn, hvort sem það er Evrópudeildin eða Sambandsdeildin. Versta niðurstaðan er að sogast í neðri hlutann og vera rétt fyrir ofan fallsvæðið en það er erfitt að sjá liðið lenda í fallbaráttu.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Mynd: Brentford
Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Mynd: KSÍ