Fotbolti.net
11.08.26 - 12:43
Elvar Geir Magnússon

Man Utd og Chelsea boðið að kaupa Lewis-Skelly

Man Utd og Chelsea boðið að kaupa Lewis-Skelly
Canon

Mynd: EPA

Arsenal vill jafna út bókhaldið eftir leikmannakaup sín en félagið var að versla Bruno Guimaraes frá Newcastle fyrir 75 milljónir punda.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Chelsea og Manchester United boðist að kaupa vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly. Hann byrjaði aðeins fimm úrvalsdeildarleiki á síðasta tímabili en Ricardo Calafiori var fyrsti kosturinn í vinstri bakvörðinn.
Hann fékk að spila í bikarkeppnunum og lék alls 36 leiki þegar Arsenal vann sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár. En framtíð hans er í óvissu og hann gæti neyðst til að færa sig um set til að fá meiri spiltíma.

Lewis-Skelly, sem getur einnig leikið sem miðjumaður, hefur verið á radarnum hjá Chelsea í nokkurn tíma. Félagið seldi vinstri bakvörðinn Marc Cucurella til Real Madrid í sumar.

Hjá United er Michael Carrick að leita að langtímaarftaka Luke Shaw. Félagið hefur verið orðað við Lewis Hall hjá Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.