Úrvalslið ungra leikmanna í Bestu - Stjarnan eina liðið ekki með fulltrúa

Markús Páll, Freyr Sig og Haukur Andri eru allir í hópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Sölvi stóð vaktina á meðan Árni Marinó var frá vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Helgi er í miðri vörninni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið frábær með Keflvíkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stigið verulega upp eftir að Amin fór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lið erlendis frá með augastað á Ágústi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Páll, Freyr Sig og Haukur Andri eru allir í hópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alls eiga sjö lið fulltrúa í byrjunarliðinu og ellefu lið eiga fulltrúa í hópnum. Stjarnan er eina liðið ekki með fulltrúa.
ÍA á þrjá fulltrúa í byrjunarliðinu, mest allra. Liðin þar á eftir eru Fram og Breiðablik með tvo fulltrúa hvort lið.

Í markinu stendur Jón Sölvi Símonarson (2007). Hann var fenginn til ÍA á undanþágu frá KSÍ vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar og stóð sig með prýði í fjarveru hans.
Í hægri bakverði er annar Skagamaður, Styrmir Jóhann Ellertsson (2008), en hann hefur komið vel inn í liðið í undanförnum leikjum.
Ásgeir Helgi Orrason (2006) og Þorri Stefán Þorbjörnsson (2006) mynda hafsentaparið en þeir hafa báðir verið í stórum hlutverkum í sínum liðum.
Davíð Helgi Aronsson hefði verið meðal fyrstu manna á blað hefði hann ekki farið út til Lyngby á láni í sumarglugganum. Sama má segja um Alexander Rafn Pálmason sem er farinn út til Nordsjælland.
Í vinstri bakverði er Baldur Kári Helgason (2005) en hann hefur verið í lykilhlutverki hjá FH á tímabilinu og var valinn í A-landsliðshóp Íslands sem mætti Mexíkó í æfingaleik skömmu fyrir mót.
Miðjuna mynda þeir Þorlákur Breki Baxter (2005), Einar Freyr Halldórsson (2008) og þar fyrir framan er Freyr Sigurðsson (2005).
Á vinstri kantinum er Galdur Guðmundsson (2006), sem hefur stigið verulega upp eftir að Amin Cosic fór til Noregs. Á hinum kantinum er Ágúst Orri Þorsteinsson (2005), en mörg lið erlendis frá eru með augastað á honum.
Daði Berg Jónsson gerir atlögu að liðinu en hann er að koma til baka eftir löng og erfið meiðsli og þarf því að sætta sig við bekkjarsetu.
Markús Páll Ellertsson leiðir línuna en hann hefur komið frábærlega inn í lið Skagamanna og hefur hann skorað níu mörk á tímabilinu.
Varamannabekkurinn:
Ívar Arnbro Þórhalsson (m) (2006), KA
Daði Berg Jónsson (2006), Víkingur R.
Sigurður Breki Kárason (2009), KR
Markús Máni Pétursson (2006), KA
Haukur Andri Haraldsson (2005), ÍA
Arnar Bjarki Gunnleifsson (2010), Breiðablik
Sesar Örn Harðarson (2006), ÍBV
Gils Gíslason (2007), FH
Dagur Orri Garðarson (2005), Valur

Jón Sölvi stóð vaktina á meðan Árni Marinó var frá vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Helgi er í miðri vörninni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið frábær með Keflvíkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stigið verulega upp eftir að Amin fór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lið erlendis frá með augastað á Ágústi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
