11.08.26 - 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir Alghoul og Conteh einbeitta á verkefnið eftir uppákomuna á dögunum

Mua Alghoul

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alpha Conteh

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvö gul og þar með rautt á Conteh gegn Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mua Alghoul

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það kom upp atvik í lok síðasta mánaðar þar sem Alpha Conteh nefbraut samherja sinn, Muhamed Alghoul, á æfingu Keflavíkur. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sló Alpha til Mua, eins og hann er kallaður, eftir að hafa verið ögrað og fór það svo að Mua nefbrotnaði.
Alpha var í byrjunarliðinu gegn bæði KA og Stjörnunni en Mua hefur ekki verið með. Það styttist þó í að hann geti snúið aftur.

„Mua er byrjaður að æfa, er að jafna sig í nefinu. Ég efa það að hann verði klár í næsta leik, en hann er mættur á æfingasvæðið og hefur verið að hreyfa sig, er að taka sín fyrstu skref á æfingum. Hann er kominn með grímu og markmiðið er að hann fari af stað og sjáum við hvort hann komist í gegnum æfingar. Hann vill fara spila eins fljótt og hann mögulega getur og klára tímabilið. Svo myndi hann fara í aðgerð eftir tímabilið."
„Þú þarft að venjast því að vera inni á vellinum eftir svona brot, ert með einhverjar bólgur og í leikjum þarf að skalla bolta og fara í návígi. Samkvæmt læknisráði á hann að prófa að byrja núna. Það er möguleiki á að hann geti tekið þátt í leiknum gegn Þór, en það er tvísýnt. Við gerum allavega ráð fyrir því að hann verði klár fljótlega eftir það," segir Jónas Guðni Sævarsson, yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík, við Fótbolta.net.
Þurftu þeir Alpha og Mua að ná saman, tókuð þið sáttafundi?
„Það er búið að taka nokkra fundi, þeir eru báðir einbeittir á verkefnið sem framundan er," segir Jónas Guðni.
Alpha Conteh verður ekki með Þór á laugardag þar sem hann fékk tvö gul spjöld gegn Stjörnunni og tekur út leikbann.