11.09.04 - 06:26
Magnús Már Einarsson
Powell lánaður til West Ham (Staðfest)

Chris Powell er hress.


Chris Powell er hress.

West Ham hefur fengið vinstri bakvörðinn Chris Powell að láni í einn mánuð frá Charlton. Hinn 34 ára gamli Powell sem að á fimm landsleiki að baki fyrir Englendinga hefur ekkert spilað með Charlton á þessari leiktíð en Hermann Hreiðarsson er í vinstri bakverðinum hjá Charlton eins og flestir vita.
Alan Curbishley stjóri Charlton ákvað að senda Powell í lán til West Ham til að hann geti spilað fótbolta með aðalliði. West Ham er að styrkja sig fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en í gær fékk liðið varnarmanninn Malky Mackay frá Norwich.
