Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. september 2020 23:30
Aksentije Milisic
Scholes segir Messi vera þann besta
Mynd: Getty Images
Paul Scholes, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir að Lionel Messi sé besti leikmaður sem hefur verið inni á sama velli og hann.

Scholes valdi Messi fram yfir Ronaldo og segir að hann sé algjölega einstakur leikmaður.

„Ég hugsa um bestu leikmenn sem ég hef deilt vellinum með, Eric Cantona, Zidane, Pirlo, Xavi, Cristiano Ronaldo. En sá besti af þeim er Messi," skrifaði Scholes.

„Ég gleymdi aldrei einu augnabliki gegn Messi, ég braut á honum innan vítateigs í leik gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar 2008 á Old Trafford."

„Þetta hefði átt að vera víti en ég slapp. Ég sá heiminn hrynja fyrir framan mig þegar ég setti löppina út og Messi fékk snertinguna og datt. Ég var heppinn, þetta var ótrúlegt augnablik."
Athugasemdir
banner
banner