Fotbolti.net
11.10.26 - 10:53
Brynjar Ingi Erluson

Elton John vonsvikinn - „Finn til með þeim sem þurfa að horfa upp á þetta“

Elton John

Elton John

Canon

Mynd: EPA

Elton John, söngvari og fyrrum eigandi Watford, er afar vonsvikinn með gengi liðsins á tímabilinu.
John er einn ástsælasti söngvari Bretlands og hefur lengi verið viðloðandi Watford. Hann hefur tvisvar verið meðal eigenda félagsins og átti stóran þátt í uppgangi þess á áttunda og níunda áratugnum. Hann kom svo aftur að félaginu á þeim tíunda og hjálpaði því upp í úrvalsdeildina.

John seldi hlut sinn árið 2002 en hefur alltaf fylgst náið með liðinu. Watford hefur nú tapað þremur leikjum í röð í ensku B-deildinni, og fimm af síðustu sex og er í 20. sæti.

Hann leyndi ekki vonbrigðum sínum með gengið í færslu á Instagram sem hann eyddi síðar.

„Sem stuðningsmaður Watford alla mína ævi er ég mjög leiður og vonsvikinn yfir slöku gengi síðustu vikna. Ég finn virkilega til með stuðningsmönnunum sem þurfa að horfa upp á þetta,“ skrifaði Elton John.


Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.