Fotbolti.net
11.10.26 - 22:53
Andri Stefánsson

„Við fengum færin til að klára þetta“

Auglýsing
Aron Elís Þrándarson.

Aron Elís Þrándarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Elís, leikmaður Víkings, var svekktur eftir 2-2 jafntefli gegn ÍA í Bestu deild karla í kvöld. Víkingar komust í tveggja marka forystu en náðu ekki að halda henni.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍA
„Mér fannst við byrja vel og komumst í 2-0. Svo vorum við klaufar og þeir refsuðu okkur. Við fengum alveg færin til að klára þetta í lokin en vorum klaufar að nýta þau ekki“, sagði Aron.

Erfiðar aðstæður
Aron Elís sagði vindinn hafa haft áhrif á leikinn og að landsleikjahléið hefði mögulega setið í mönnum.

„Það er svolítið erfitt að bíða svona lengi eftir leik og kannski smá ryð í sumum. Vindurinn gerði okkur erfitt fyrir að spila flottan fótbolta en við sköpuðum samt helling af færum.“

Aron Elís komst sjálfur á blað í leiknum og var ánægður með að skora á ný.

„Það er fínt að skora, allt of langt síðan. En við horfum bara til næsta leiks.“

Víkingar eru þegar orðnir Íslandsmeistarar en eiga tvo leiki eftir af tímabilinu.

„Þetta er bara standardinn hjá okkur í Víkinni. Við förum í alla leiki til að vinna þá. Svo fáum við Blikana í heimsókn á laugardaginn og það verður veisla.“

Viðtalið í heild sinni er hér fyrir ofan.

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.27+5164
2KR27+3556
3Fram27+947
4ÍA27-138
5Breiðablik27-336
6Keflavík27-1130
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.